Eva den danske pige

Eva

15.06.2007 01:04:22 / evarey86

Til eru fræ..

Þessi texti er einn af mínum uppáhalds, fallegur en áhrifamikill í senn
Til eru fræ

Til eru fræ, sem fengu þennan dóm:
Að falla í jörð, en verða aldrei blóm.
Eins eru skip, sem aldrei landi ná,

og iðgræn lönd, er sökkva í djúpin blá,
og von sem hefir vængi sína misst,
og varir, sem að aldrei geta kysst,
og elskendur, sem aldrei geta mæst
og aldrei geta sumir draumar ræst.

Til eru ljóð, sem lifna og deyja í senn,
og lítil börn, sem aldrei verða menn.

       Erl. lag / Davíð Stefánsson
 
Kv. Eva sem er löt að blogga;) 

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.04.2007 15:02:20 / evarey86

Páskafrí og Missóverkefni

 

 

Sælar..

Ætlaði rétt að láta vita af mér.. Síminn minn er búinn að vera batteríslaus í viku, Eva kjáni gleymdi hleðslutækinu uppá Bifröst:S. En hann er komin í lag núna, þannig að þið getið truflað mig eins og þið viljið núna:)

Já það sem er að gerast hjá mér núna er að ég kláraði prófin fyrir tveim vikum eða svo og er núna að vinna að misserisverkefni. Ég er í fínum hóp, er eina stelpan og þarf að hafa hemil á þessum strákum:) Palli Kvaran og Hlölli úr Kvennó eru t.d. með mér í hóp og þeir eiga það til að elda grátt silfur saman.. en strákar eru svo einfaldir að þeir eru ekki að erfa svona rifrildi við hvorn annan. Við erum að gera verkefni sem felst í því að kanna gildismat frambjóðenda. Erum búin að senda könnun á fimm efstu frambjóðendur í hverjum flokki og hverju kjördæmi.. Vonandi að við fáum sem besta svörun svo að það verði auðveldara að vinna verkefnið:) Það er því miður bara ein vika eftir af verkefninu þannig að við þurfum að fara að spýta í lófana til að ná að klára þetta.. en allavega þetta reddast, er þaggi bara:)

Heyrru og það er búið að skíra litla frænda. Hann heitir Daníel Björn. Mér finnst það voða fallegt nafn. María systir sagði við mig um daginn að hún vonaði að ég fyrirgæfi henni að skýra hann Daníel ef að ég þekkti einhvern leiðinlegan Daníel. En það er svo merkilegt að ég þekki marga með nafnið Daníel og enginn þeirra er slæm manneskja, þannig að hún þurfti ekki að fyrirgefa neitt:) Það ættu að vera komnar myndir af skírninni á síðunna þeirra ef þið viljið skoða.

Ég og Gunni eru að vinna í því að komast til Belgíu í skiptinám. Ef við komumst bæði þá myndum við fara í febrúar á næsta ári og vera til byrjun júlí. Við erum voða spennt yfir þessu, vonandi gengur þetta upp hjá okkur. Bærinn sem við vonumst til að geta búið í heitir Leuven og er í 20 mínutna frjarðlægð frá Brussel. Belgía er svo rosalega miðsvæðis að það væri ekkert mál að ferðast aðeins meðfram því að læra. Til dæmis er ekki svo langt að fara til Amsterdam, Parísar og fleiri staða í kring. En við verðum bara að bíða og sjá hvort að þetta verði að veruleika. Cross my fingers:)

Ég þarf ekkert að vesenast í því að finna mér vinnu fyrir sumarið. Ég verð nebbla í fullri vinnu/skóla uppá Bifröst alveg til enda júlí. Þannig að ég fæ bara mánaðar frí:( En klára í staðin á tveim árum. Vonandi:D

En jæja þá er ég búin að babbla nóg í bili.. vonandi að þið nennið að lesa þetta þó þetta sé langt:)

Sakna allra vina minna og vonandi að þið getið farið að koma í heimsókn á Bifröst til mín.. Ég hef alltaf gaman að því að fá heimsókn. Kannski verður meira færi á því í sumar. Allaveg getið komið any time:)

see ya later

Eva Reynis


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 11:53:30 / evarey86

Nýji fjölskyldumeðlimur fæddist 16.febrúar

Já það eru nú aldeilis fréttir af mér og minni fjölskyldu.. Litli prinsinn þeirra Maríu sys og Baldurs kom í heiminn 16.febrúar. Það var sem betur fer á föstudegi að ég gat séð hann alveg glænýjan, brunaði í bæinn til að líta á guttann.

Þau eru með heimasíðu þar sem fullt af myndum eru komnar inn endilega kíkja á það

www.barnanet.is/baldursborn

 Og Sigrún Linda er ekkert smá hugulsöm og sæt systir alltaf að knúsa hann og kyssa. Hún á eftir að vera voða passasöm á hann held ég.. maður sé strax að henni þykir vænt um hann. 

 

Endilega skoðið myndirnar og það er mynd af mér með hann, í fanginu á Evu frænku:)

 

Over and out

Eva Reynis 


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 22:52:48 / evarey86

Hittingur hjá gamla genginu fyrr en seinna

Jæja skvísur

Er ekki kominn tími til að fara að hittast.. Gerð var heiðarlega tilraun til þess fyrir nokkrum vikum en sá hittingur átti sér svo ekki stað og stund, einhver miskilningur milli manna:) En maður má ekki gefast upp..

Hugmynd var uppi að hittast og skipurleggja t.d. sumarbústaðaferð og annað skemmtilegt. Þar sem það er svo erfitt að skipurleggja þannig að allir komist á einhverjum ákv. tíma í bústað eða eitthvað soleiðis (sökum anna:)) Þá var ég að spá hvort við myndum ekki reyna að hittast einhvert föstudags eða laugardagskvöldið heima hjá mér, með rautt og hvítt og spjalla aðeins um þetta..

Þetta þarf ekkert að vera rosalega njörvað niður bara svona svo við vitum hvernær fólk er upptekið og eftir "fundinn" þá er kannski hægt ákveða hitting... Bara svona svo við gleymum ekki hvers vegna við erum svona geggjaður hópur ;)

Bara svo við séum með það á hreinu hvaða geggjaða hóp ég er að tala um er það auðvitað Kvennó-gengið góða og Gamla góða gengið úr Þingó..
Þið vitið hverjar þið eruð:D

Kommentið endilega svo ég viti af ykkur eða þá segið mér bara hver ég á að mæta á djamm næstu helgi
:lol:

P.s. Lilja sendu komment um hvenær þú kemur næst heim.. svo við séum meðvitaðar um það..
P.p.s : Ég biðst afsökunnar ef ég er of skipurlögð á þetta og þið segir mér þá bara að hætta þessu "bulli" ef þetta er asnalegt:haha:

» 6 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 00:51:47 / evarey86

Stökkbólginn háls og djamm bæði fös.. og laug..:S

Já ekki er það fallegt... ég er komin með flensu :s
Þetta sama allir eru búnir að vera með og ég sem hélt ég væri svo healthy að ég myndi sleppa.. En vona að ég nái að sofa allavega það mesta úr mér fyrir árshátíðina á morgun eða í dag öllu heldur.. þar sem klukkan er orðin þetta margt.

Það er nú önnur ástæða en veikindin fyrir því afhverju ég er á löppum svona seint. Ég er að skrifa ritgerð akkurat í þessum töluðu orðum um ríkistjórnamyndanir og ríkistjórnarmynstur á Norðurlöndunum... Mjög skemmtilegt efni en er búin að vera allt of lengi með hana.. verð að fara að slútta henni. 

En já árshátíðin a.k.a. Bifró.. vonandi gengur allt vel fyrir sig og vonandi ég verði hressari en ég er akkurat núna..
Ég fékk þetta nú frekar snogglega, var fín í morgun, en við skulum bara vona að þetta far jafn fljótt og það kom.

sendið mér góðan bata strauma I really need it :D

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 21:07:42 / evarey86

Ég bara trúi þessu ekki ......

Helvítis anskotans djöfull er eina sem ég get sagt.
Komust allt of nálægt því að komast í undanúrslit..
Var á kaffihúsinu á Bifröst og rífandi stemming yfir leiknum allan tíman en nei.. og ég blót nú dönunum ekki oft.. en núna geri ég það.. ANSKOTINN:@

En svona þegar maður lítur á þetta jákvæðnari augum þá stóðu "strákarni okkar" sig rosa vel á þessu mót og alveg synd og skömm að þeir unni ekki þennan leik. Áttu það alveg skilið að mínu mati...
En þá er bara að ná 5. sætinu það ætti ekki að vera ómögulegt nema það kannski Króatar verði erfiðir..

Allavega.. í heildina litið var gaman að fylgjast með strákunum.. Og það er það sem þetta snýst kannski um að skemmta sér yfir góðum handbolta

Jákvæða Eva

» 3 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 10:02:36 / evarey86

Jæjæ er ekki kominn tími til að blogga smá

Okídókí

Já þannig er mál með vexti að ég ætla að byrja að blogga smá aftur..
Ég er á Bifröst að læra heimspeki, hagræði og stjórnmálafræði og er uppfrá á Bifröst alla virka dag og er í bænum um helgar..
Ég er alveg flutt frá mömmu og bý með Gunna um helgar. Hann er byrjaður að leigja á Bröttugötunni í Grjótaþorpinu (101). Þá er ég miðbæjar rotta um helgar og utanbæjar lið á virkum:)

En þetta er væntalega þær upplýsingar sem allir sem skoða síðuna mína vita.. en allt í lagi að undirstrika það.. svo að þið gleymið mér ekki þó;)

Næst á dagskrá er árshátíð Bifrastar þ.e. Bifróvison á föstudaginn og afmæli hjá Guggu vinkonu á laugardaginn.. Við sjáum til hvað maður verður hress eftir árshátíðina:D
Svo er Gunni og Ari að spila á Celtic Cross á föstudag og laugardag (01:00-05:00) Allir að mæta og ;)

Annars bið ég vinkonur mínar í bænum afsökunnar að ég hef ekki hitt þær mikið.. það er svona að vera í þessu háskóla námi:evil:
Það er ekki það að ég vilji ekki hitta ykkur skvísur.. maður er bara alltaf í heimanámi um helgar.. það ætti að vera lögbann á soleiðis:)

Kveðja Útanbæjarpakkið Eva Reynis


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.07.2006 21:11:21 / evarey86

Úr Vedbæk til Valby!

Þá er það komið á hreint við erum að fara flytja nær Köben.. Við munum búa í Valby sem er í 10-15 mín fjarlægð á hjóli, sem er mjög gott;) Í Valby er svokölluð Valbyhallen þar sem ég fá á Backsteet Boys tónleika um árið..;)
Allaveg svo ég útskýri þetta betur þá munum við leigja með íslensku pari sem við þekkjum, Kollu og Sigga. Aðal kosturinn er auðvitað hversu nálægt íbúðin er centerinu..

Þannig að styttra í vinnuna og minna mál að fara heim eftir djamm í bænum, jíbbí ;)

love you all ;)

» 8 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 19:06:25 / evarey86

Fleiri myndir

Jæjæ þá eru komnar myndir af ljótufatakvöldinu, undir Myndir1#
Good times, good times;)



» 11 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 20:27:00 / evarey86

Ljótufatakvöldið fræga..

Einni pælingu beint að stelpunum sem voru með í ljótufata kvöldinu á Tyrklandi.. spurningin hljóðar svo; Fæ ég samþykki ykkar um að setja myndir frá kvöldinu á síðuna mína.. mikið af "góðum":) myndum..
Látið mig vita hvað ykkur fynnst um það;)
Luv ya all;)

Þessi er nú ágætlega myndalegur finnst ykkur ekki:lol:

» 4 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 19:48:26 / evarey86

Sérfræðingur í klúðri.. hehe

Jamm og já nú er en einn annar vinnudagur búinn. Það er voðalega fínt í vinnunni, er búin að vera læra á þetta allt saman og búin að klúðra eitthvað eins og gengur og gerist. Eins og t.d. að verðmerkja vitlaust, og stimpla vitlaust  inní kassan og svona;) En mistökin minnka með hverjum deginum. Ég er yfirleitt svolítið þreytt í fótunum því maður stendur í 8 tíma á dag, en þeir eru samt fljótir að líða því það er alltaf nóg að gera.

Annars erum við Gunni að spá í að taka okkur helgarfrí saman og skreppa til Berlínar. Það kostar ekki nema 199 kr danskar, gista svo á einhverju ódýru hóteli og hafa það gott saman. En það verður öruggleg ekki fyrr en einhverntíman í ágúst þegar við erum búin að vinna okkur upp aðeins meiri pening.
En jæja þá segi bara bless í bili.
P.s. endilega verið dugleg að commenta, alltaf gaman heyra frá gömlu góðu vinunum:)

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 20:57:36 / evarey86

Ja nú eru það fréttir!

Hvað haldiði að hafi komið fyrir kellinguna í dag maður...
Við Gunni vöknuðum snemma og ætluðum í alsherjar atvinnuleit. Fórum út á aðallestastöðinni og löbbuðum þungbúin í áttina að strikinu. Þúngbúin því við maður átti erfitt með að ýminda sér að geta fengi vinnu úr þessu. En þá gerðist nokkuð merkilegt.
Fjórða eða fimmta búðin vinstra megin á strikinu, var með aulýsingu í glugganum,:Person söges, eða eitthvað. Ég labba inn hitti þar eigandan og spyr um vinnu, um leið og ég rétti henni blað um sjálfa mig. Hún talar við mig ensku því hún er frá Ísrael, sem var gott, því þá þurfti ég ekki að líta út eins og bjání á einhverji formlegri/óformlegri dönsku:) Tala hvorugt;)
En ekki nóg með að henni leist vel á mig, heldur spurði hún mig hvort ég vildi ekki bara prufa, her exact words: you want to try to work hear today!!!
Ég átti ekki orð, fyrsta búðin sem ég labba inn í og ég fékk bara vinnu sísona, eða þúst. En dagurinn gekk vel. Vann með þessari Ísraelsku, sem ég get ekki munað hvað heitir og Tönju dönsku sem er btw svona 150cm ekki meira;) og svo er það bara mæting í fyrramálið klukkan korter í 10 til 18. Nokkuð gott er það ekki.
Vonadi að þetta gangi vel, hef allavega góða tilfinningu sambandi við þetta allt saman. Allavega just wish me luck;)

luv ya all


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.07.2006 11:54:42 / evarey86

Sól og Tívolí


Gærdagurinn byrjaði ekki mjög vel. Við Gunni enduðum á því að vera svona klukkutíma í strætó og fórum alveg heilan hring í kringum langt svæði. Ástæðan var sú að við ætluðum á skattstofuna en vegna þess hversu langa leið strætóinn keyrði vorum við of sein þangað og fórum því ekkert úr strætónum heldur enduðum bara á strætóstöðinni sem þetta ferðalag byrjaði á.
En allaveg, ekki hægt að svekkja sig á því. Þegar við komum heim ákváðum við að útbúa nesti og fara með teppi, bók og bjór, í almenningsgarð í Köben. Þar sleiktum við sólina í allnokkra tíma. Maður á eftir að gera mikið af þessu ef veðrið hérna heldur áfram að vera svona gott. (Aðeins að gera ykkur abbó :))
Tónlistamaðurinn Jamie Cullum átti restina af kvöldinu hjá okkur. Fórum í Tívolí-ið og þar var þessi frábæri píanóleikari með tónleika. Ég hafði lítið sem ekkert heyrt í honum áður, en þetta reynist vera þvílít undrabarn á píanó, bara ungur gaur 27 eða eitthvað. Hann spilar svona jazz/popp. Alvega frábært show, spilaði non stop í 2 tíma. Mæli með þessum!
Annars á að sleikja sólina meira í dag. Ætlum niðrá strönd sem er ekki langt frá okkur, hjólum svo væntanlega heim þegar við erum búin að ná í hjólin í viðgerð.

Bless í bili


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 09:42:37 / evarey86

Nýtt símanúmer

Góðan daginn, var að vakna við sváfum aðeins of lengi vorum í bjórnum í Köben í gærkvöldi. En erum að fara að drífa okkur af stað, því við ætlum í atvinnuleit í dag. Við þurfum líka að reyna að fá nýjan lás á annað hjólið, lykillin af hinu er týndur, hingað til hefur Gunni verið að reiði mig niðrá lestarstöð. En það er nú bara smá rómó fílingur við það;)

En aðal málið með þessari frétt er að ég er komin með danskt símanúmer það er:
s; 0045-25566202

versegod..;)

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.07.2006 20:35:29 / evarey86

Fyrsta Bloggið mitt!

dav..

nú er ég fyrst farin að fylgja straumnum og búin að fá mér blogg.. Ég ætla að reyna að vera dugleg við þetta svo ég geti nú látið vita af mér.. Eins og eflaust flestir vita er ég stödd í danmörku, nánar tiltekið í Tröröd í Vedbæk. Það er svona 20 mínútur í lest frá Kaupmannahöfn.
Bærin er alveg æðislegur og hér ríkir algjör sveitasæla, allt er skógi vaxið og maður heyrir í hestunum hneggja þegar maður situr úti á pallinum hjá okkur. Íbúðin er lítil og krúttaraleg, ég set örugglega nokkrar myndir inn þegar ég er búin að læra hvernig það virkar:)
Það var smá vesen varðani kaffihúsið sem ég ætlaði að fara í prufu hjá, fæ víst ekki vinnu þar því það opnar ekki fyrr en 1.ágúst.. En þetta reddast. Ég er að fara í allsherjar vinnu leit á mánudaginn og vonandi gengur það vel..
Annars er ég bara ótrúlega ánægð að vera komin til hans Gunna míns, við eigum eftir að hafa það svo gott hérna það er ekki spurning.

jæja... ætla að hætt í bili, erum að fara þvo þvott hér á kollegi-inu.. sjáum til hvernig það gengur, erum bæði tvö frekar mikil amatörar í þeim efnum;)

med venlig hilsen
Eva



» 5 hafa sagt sína skoðun


Aðrir bloggarar
Myndir